Erlent

Rússland er með framtíð efnahags Tyrklands í hendi sér

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Tómataframleiðsla er mikil í Tyrklandi en hugsanlegar efnahagsaðgerðir Rússa gætu haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þá framleiðslu.
Tómataframleiðsla er mikil í Tyrklandi en hugsanlegar efnahagsaðgerðir Rússa gætu haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þá framleiðslu.

Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti vill mæta Vladimír Pútín Rússlandsforseta og ræða við hann augliti til auglitis í París í næstu viku á sama tíma og loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst. Pútín hefur krafist þess að Tyrkir biðjist afsökunar á því að hafa grandað herþotu sem flaug inn í Tyrkneska lofthelgi á þriðjudaginn.

Hann muni ekki ræða við Erdogan fyrr en afsökunarbeiðni hafi borist. Þá hefur Erdogan harðneitað að biðjast afsökunar. „Ef það er einhver sem þarf að biðjast afsökunar þá erum það ekki við,“ sagði Erdogan í ávarpi á fimmtudaginn. „Þeir sem vanhelguðu lofthelgi okkar eru þeir sem þurfa að biðjast afsökunar. Flugmenn okkar og her voru einfaldlega að sinna skyldu sinni,“ sagði hann.

Þá hefur Erdogan sagt að honum þyki það miður að samskipti ríkjanna hafi versnað en ekki er útlit fyrir þíðu í samskiptum ríkjanna tveggja á næstunni. Rússar hafa boðað umfangsmiklar þvingunaraðgerðir gagnvart Tyrklandi.

Aðgerðir gegn Tyrkjum kynnu að hafa afdrifaríkar afleiðingar en Rússland er mikilvægasti viðskiptafélagi Tyrklands á eftir Þýskalandi. Um 3,5 milljónir Rússa sækja Tyrkland heim árlega og ferðaþjónustan í Tyrklandi leggur um 13 þúsund milljarða króna til landsframleiðslu Tyrklands, enn fremur starfa um 2,1 milljón manns við ferðaþjónustuna í Tyrklandi.

Um 60 prósent af öllu jarðgasi og 30 prósent af allri olíu sem Tyrkir kaupa koma frá Rússlandi og árið 2014 voru tekjur af útflutningi til Rússlands sem nemur um 3.300 milljörðum króna. Nú þegar hefur landbúnaðarráðherra Rússlands tilkynnt um að ríflega 15 prósent innfluttra matvæla frá Tyrklandi standist ekki heil­brigðis­staðla í Rússlandi.

Gennady Onish­chenko, fyrrverandi yfirmaður matvælaeftirlitsins í Rússlandi, lét hafa eftir sér í vikunni að hver tyrkneskur tómatur sem Rússar keyptu færi í að fjármagna næsta loftskeyti til að granda rússneskri þotu. En rúmlega 20 prósent af öllu grænmeti sem flutt er til Rússlands koma frá Tyrklandi.

Þá tilkynnti Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í gær að frjálsum fólksflutningum á milli ríkjanna yrði hætt þann 1. janúar næstkomandi og vegabréfsáritunar yrði krafist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×