Bíó og sjónvarp

Russell Crowe er viðkvæmur

Russell Crowe er viðkvæm týpa.
Russell Crowe er viðkvæm týpa.
Russell Crowe er „mjög viðkvæmur“ og heldur að það sé þess vegna sem hann kemur sér oft í vandræði.

Margir vilja meina að Noah-leikarinn sé hrokafullur og skapstyggur en hann segist eingöngu taka hluti meira nærri sér en hann ætti kannski að gera.

„Sjáðu til, ég er mjög viðkvæmur og þaðan kemur líklega sumt af þessu neikvæða sem hefur verið sagt um mig. Ég hef frekar gott innsæi og ég finn það á handtaki fólks hvort það vill mér gott eða illt,“ sagði hinn fimmtugi Crowe, sem á tvo syni, átta og tíu ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×