Sport

Rússar mega lyfjaprófa á ný

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Yfirvöld í Rússlandi voru sögð hafa staðið á bak við lyfjasvindlið.
Yfirvöld í Rússlandi voru sögð hafa staðið á bak við lyfjasvindlið. vísir/getty

Alþjóða lyfjaeftirlitið, WADA, hefur gefið rússneska lyfjaeftirlitinu leyfi til þess að lyfjaprófa sitt fólk á ný en þó undir eftirliti.

Starfsemi rússneska lyfjaeftirlitsins var stöðvuð árið 2015 er upp komst um skipulagt lyfjasvindl Rússa.

Breska lyfjaeftirlitið mun fylgjast með því að allt verði með felldu í lyfjaprófunum í Rússlandi. Hversu lengi er óvíst á þessari stundu.

Forseti WADA, Sir Craig Reedie, segir að þetta sé mikilvægt skref í þeirri viðleitni að endurbyggja trúverðugleika rússneska lyfjaeftirlitsins.

Í skýrslunni sem greindi frá skipulagða lyfjasvindlinu kom fram að yfir 1.000 rússneskir íþróttamenn hefðu viljandi svindlað frá árinu 2011 til 2015. Þar á meðal voru verðlaunahafar frá Ólympíuleikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×