Sport

Rússar gætu líka verið í banni á næstu Ólympíuleikum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frá keppni á ÓL í  Sochi 2014.
Frá keppni á ÓL í Sochi 2014. Vísir/Getty
Rússneskir íþróttamenn gætu verið útilokaðir frá keppni á næstu Vetrarólympíuleikum og Vetrarólympíumóti fatlaðra sem fara fram í Pyeongchang í Suður-Kóreu eftir rúmt ár.

Rússar urðu uppvísir að því að skipuleggja ólöglega lyfjagjöf íþróttamanna sinna og hjálpa sínu óhreina íþróttafólki að sleppa í gegnum lyfjaeftirlit.  

McLaren-skýrslan fjallaði ítarlega upp málið og úr varð eitt mesta lyfjahneyksli íþróttasögunnar.

Rússneskir frjálsíþróttamenn máttu ekki taka þátt í Ólympíuleikunum í Ríó og fjöldi rússneska íþróttamanna úr öðrum greinum voru líka útilokaðir frá keppni.

Rússar voru í algjöru banni frá Ólympíumóti fatlaðra á síðasta ári eftir að stjórn Ólympíunefndar fatlaðra kaus samhljóða um að banna þátttöku þeirra í Ríó 2016.

Sir Philip Craven, forseti Alþjóðlegu Ólympíunefndar fatlaðra, segir að slíkt bann gæti mögulega verið áfram í gildi á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Pyeongchang.

Caven talar einnig um það að afrek Rússa frá því á síðustu Vetrarólympíuleikum í Sochi hafi fölnað eftir rússneska lyfjahneykslið en McLaren-skýrslan fjallaði meðal annars um svikamyllu Rússa í tengslum við Ólympíuleika þeirra í Sochi.

„Ég veit ekki hvað gerist og ég er ekki sá eini sem veit það ekki. Ég er ekki að bíða eftir því að einhver segi fyrirgefðu heldur komum þessu bara í lag,“ sagði Sir Philip Craven.

McLaren-skýrslan greindi frá því að Rússar hafi átt við lyfjapróf sinna íþróttamanna með það markmið að hjálpa þeim að standast lyfjapróf. Alls áttu að hafa verið „eyðilögð“ hundrað þvagsýni sem höfðu án afskipta sýnt ólöglega lyfjanotkun rússneska íþróttafólksins.

Rússar unnu alls 33 verðlaun þar af 13 gull á Vetrarólympíuleikunum í Sochi en rannsókn á 28 rússneskum íþróttamönnum á leikunum gæti þýtt að Rússa myndu missa í það minnsta tólf verðlaun á leikunum.

Komi hið versta í ljós er ljóst að Rússar þurfa að taka afleiðingum svika sinna og því verður að teljast líklegt að þetta kosti þá einnig bann frá Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang 2018.

Rannsóknarmenn halda áfram að velta upp steinum í þessu ljóta máli og því má búast við að rússneska lyfjahneykslið muni halda áfram að stela fyrirsögnunum fram að leikunum Pyeongchang sem hefjast 9. Febrúar 2018.

Á fimmtudaginn stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur fyrir ráðstefnu um lyfjamál kl.17:30-20:30 í Háskólanum í Reykjavík. Þrír áhugaverðir fyrirlesarar halda tölu, meðal annars fyrrverandi Tour de France hjólreiðamaðurinn Michael Rasmussen sem hefur viðurkennt stórfellda lyfjamisnotkun á meðan á ferlinum stóð. Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér


Tengdar fréttir

Rússar enn úti í kuldanum

Alþjóða frjálsíþróttasambandið, IAAF, hefur ákveðið að framlengja bann Rússa frá alþjóðakeppnum í frjálsum íþróttum.

Einn Rússi fær að taka þátt í frjálsíþróttakeppninni

Það er nú orðið ljóst að einn rússneskur íþróttamaður verður með í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna þó svo alþjóða frjálsíþróttasambandið hafi sett alla rússneska frjálsíþróttamenn í bann frá leikunum.

Það er hægt að vinna án þess að svindla

Úrslitasundið sem Hrafnhildur Lúthersdóttir tók þátt í var á allra vörum í nótt. Þar mætti nefnilega hin óvinsæla rússneska sundkona Yulia Efimova.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×