Fótbolti

Rúrik og félagar töpuðu í níu marka leik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rúrik Gíslason spilaði 45 mínútur í fyrsta leik sínum í þýsku 1. deildinni.
Rúrik Gíslason spilaði 45 mínútur í fyrsta leik sínum í þýsku 1. deildinni. vísir/getty
Rúrik Gíslason var í byrunarliði Nürnberg í fyrsta leik liðsins í þýsku 2. deildinni í fótbolta, en fyrsta umferðin kláraðist með leik Freiburg og Nürnberg í kvöld.

Leikurinn var mikil veisla fyrir augað, en heimamenn í Freiburg unnu á undanum, 6-3, í níu marka leik. Þeir voru 4-1 yfir í hálfleik.

Rúrik var tekinn af velli í hálfleik og skoruðu gestirnir fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks áður en fimm mínútur voru liðnar og minnkuðu muninn í 4-3.

Freiburg bætti fimtma markinu við á 61. mínútu og gulltrygðu svo sigurinn á síðustu mínútu leiksins, 6-3. Nürnberg spilaði manni færri síðustu sex mínúturnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×