Íslenski boltinn

Rúnar um Björgvin Stefáns: Vonandi læknast hann og kemur aftur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Björgvin Stefánsson skrifaði undir við KR síðasta haust.
Björgvin Stefánsson skrifaði undir við KR síðasta haust. Mynd/Twtter-síða KR
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var nokkuð sáttur með sitt lið eftir 5-2 sigur á Fylki í Egilshöllinni í kvöld. Hann sagðist vonast eftir Björgvini Stefánssyni aftur í KR-liðið áður en sumarið er úti en Björgvin er tímabundið frá á meðan hann leitar hjálpar vegna misnotkunar á róandi lyfjum.

„Ég er mjög ánægður með fyrri hálfleikinn, við vorum mjög góðir í fyrri og ágætir í seinni. Leikurinn fer upp í svolitla vitleysu og við náum ekki að nýta þá möguleika sem við höfum á að koma fimmta markinu á þá í upphafi seinni hálfleiks og drepa leikinn,“ sagði Rúnar Kristinsson í leikslok í Egilshöllinni.

KR komst í 2-0 innan fyrstu 10 mínútnanna og var 4-1 yfir í hálfleik.

„Fylkismenn komu mjög sterkir inn í síðari hálfleikinn og börðust, gáfust ekki upp, og það er eitthvað sem ég held Helgi sé sáttur við og jákvætt fyrir þá. Við sáum að Víkingar voru 3-0 yfir á móti þeim í hálfleik í síðustu viku og urðum að passa okkur í því að lenda ekki í sama veseni og klára leikinn.“

„Ég er ekkert sérstaklega sáttur við varnarleikinn og við getum gert betur og refsað þeim betur, en þetta er ferlið sem við erum í, að læra og verða betri og bæta okkur með hverjum deginum.“

Björgvin Stefánsson var ekki með í leikmannahóp KR í síðasta leik og í framhaldinu gaf KR út yfirlýsingu þar sem greint var frá því að hann hefði misnotað róandi lyf og væri að leita sér aðstoðar vegna þess. Rúnar sagðist vona að sjá Björgvin aftur á vellinum áður en tímabilinu ljúki.

„Hann er að fara að vinna í sínum málum og vonandi læknast hann af þessu sem er að hrjá hann. Við munum gera allt sem við getum til þess að hjálpa honum og styðja við bakið á honum og reyna að koma honum á rétt spor. Það er ekkert auðvelt en svo framarlega sem hann tekur þessa ákvörðun sjálfur þá er von og vonandi mun hann standa sig og koma aftur á völlinn áður en Íslandsmótinu lýkur,“ sagði Rúnar Kristinsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×