Tónlist

Rúnar Þórisson heldur tónleika á KEX

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rúnar ásamt hljómsveit sinni.
Rúnar ásamt hljómsveit sinni.
Næstkomandi sunnudag mun Rúnar Þórisson ásamt hljómsveit leika á KEX Hostel en tónleikarnir hefjast kl 21.00 og er frítt inn.

Með Rúnari leika að þessu sinni Arnar Þór Gíslason á trommur, Birkir Rafn Gíslason á gítar og Guðni Finnsson á bassa en þeir hafa einnig leikið með hljómsveitum eins og Ensími, Himbrimi, Pollapönk og Mugison.

Rúnar sem sjálfur hefur spilað lengi með hljómsveitinni GRAFÍK hefur gefið út fjórar sólóplötur og munu lög af þeim hljóma á tónleikunum. Plöturnar eiga það sammerkt að hafa fengið mjög góða dóma og sú nýjasta Ólundadýr ratað á nokkra lista yfir bestu plötur ársins 2015.

Rúnar hefur síðustu misseri verið mjög iðinn við að spila á tónleikum og tónlistarhátíðum, svo sem Iceland Airwaves, Aldrei fór ég suður, Secret Solstice o.fl.

Hér að neðan má sjá myndband af laginu Rís upp af plötunni Ólundardýr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×