Íslenski boltinn

Rúnar þarf að svara KR í vikunni

Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson. vísir/stefán
KR-ingar ætla ekki að bíða endalaust eftir svari frá Rúnari Kristinssyni um hvort hann ætli sér að þjálfa lið félagsins áfram eður ei.

Rúnar er í myndinni hjá norska liðinu Lilleström en ekkert er fast í hendi. Að sama skapi liggur KR á að ganga frá sínum þjálfaramálum.

„Ég þarf líklega að gefa KR svar í þessari viku," sagði Rúnar við br.no en hann er með þriggja ára tilboð frá KR.

Þjálfarinn hefur aftur á móti áhuga á því að þjálfa erlendis og vill halda sínum möguleikum opnum.

„Ég hef metnað sem þjálfari og ég veit af áhuga frá ýmsum félögum. Þau lið eru aftur á móti ekki búin með sín tímabil og þurfa tíma til að skoða sín þjálfaramál. Ég vil þess vegna semja við KR með þeim möguleika að geta farið erlendis ef rétta tilboðið kemur í næsta mánuði. Vonandi náum við samkomulagi."

Rúnar segir enn fremur í viðtalinu að áhugi sé einnig frá liðum í Svíþjóð og Danmörku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×