Íslenski boltinn

Rúnar Páll: Hef aldrei upplifað annað eins

Anton Ingi Leifsson á Laugardalsvelli skrifar
Inter komst í 1-0 á 40. mínútu.
Inter komst í 1-0 á 40. mínútu. vísir/getty
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, hrósaði leikmönnum sínum og stuðningsmönnum í hástert eftir 0-3 tap Garðarbæjarliðsins gegn Inter frá Mílanó í Evrópudeildinni.

„Mér fannst þessi frammistaða góð. Leikmenn gerðu það sem lagt var upp með," sagði Rúnar Páll við Vísi í leikslok.

„Þeir sköpuðu sér ekki mikið af færum í fyrri hálfleik, þó þeir hefðu verið í sókn mest allan tímann. Við vissum fyrir leikinn að það myndi verða raunin. Við náðum að loka þessum svæðum þær sem þeir eru hættulegastir. Markið sem við fengum á okkur í fyrri hálfleik var klaufalegt og samskiptaleysi af okkar hálfu."

„Staðan var ágæt í hálfleik, en markið sem við fengum á okkur í upphafi síðari hálfleiks var einnig klaufalegt. Það var einn maður inn í teig hjá þeim á móti fjórum til fimm varnarmönnum okkar."

„Við þurftum að setja mark á þá í síðari hálfleik og fórum aðeins framar, en heilt yfir var þetta frábær frammistaða hjá strákunum."

„Ég hef aldrei upplifað annað eins á Laugardalsvelli. Ég hef komið hér á landsleiki síðan ég var ungur drengur, en aldrei upplifað svona stemningu. Það er frábær fyrir drengina að upplifa þetta og þetta fer í reynslubankann."

„Inter er mjög gott lið. Við vissum það alveg og við vissum að við máttum ekki opna okkur mikið varnarlega, með því að fara framarlega með bakverðina og annað."

„Við förum út og reynum að gera okkar besta. Það verður gífurlega erfitt að vinna upp þriggja marka forystu á útivelli og við ætlum að fara út og hafa gaman. Við erum að fara spila á frábærum velli og þetta verður ævintýri."

„Við þurfum að skoða þennan leik og sjáum hvort við getum eitthvað breytt útaf vananum og farið framar, en þá held ég að við endum í eitthverju stórtapi. Þeir eru það flinkir og ég held það verði mjög svipað upplegg. Kannski reynum við að fara aðeins framar með kantmennina, en höfum bara gaman að því. Það er allt hægt!," sagði Rúnar Páll að lokum.


Tengdar fréttir

Mazzarri: Einvígið er ekki búið

Walter Mazzarri var ánægður með 3-0 sigur Inter á Stjörnunni í kvöld en hann var fljótur að minna blaðamenn á að ekkert væri útilokað í fótbolta þegar borið var undir hann hvort einvígið væri búið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×