Handbolti

Rúnar og félagar fengu skell gegn Flensburg | Úrslit dagsins

Rúnar í leik með íslenska landsliðinu á sínum tíma.
Rúnar í leik með íslenska landsliðinu á sínum tíma. Vísir/Daníel
Rúnar Kárason og félagar í Hannover-Burgdorf fengu sannkallaðan skell á heimavelli í annarri umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gegn Flensburg í handbolta í dag en leiknum lauk með 15 marka sigri Flensburg 35-20.

Hannover skoraði fyrsta mark leiksins en eftir það var aldrei spurning hver sigurvegarinn í leiknum yrði. Flensburg náði um tíma níu marka forskoti í stöðunni 16-7 og tók átta marka forskot inn í hálfleikinn.

Í seinni hálfleik voru úrslitin aldrei í hættu. Náði Flensburg um tíma sextán marka forskoti og fögnuðu leikmenn liðsins að lokum öruggum sigri. Rúnar komst á blað með þremur mörkum í leiknum.

Í öðrum leikjum dagsins vann Erlangen fjögurra marka sigur á Melsungen á heimavelli og Wetzlar vann sigur á útivelli gegn Balingen-Weilstetten.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×