Handbolti

Rúnar markahæstur í tapleik

Rúnar á ferðinni.
Rúnar á ferðinni. vísir/getty
Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf fékk skell í þýska handboltanum í kvöld.

Þá sótti Hannover lið Minden heim og var flengt á bossann. Lokatölur 31-22 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-12.

Rúnar Kárason var markahæstur í liði Hannover en hann skoraði fjögur mörk. Ólafur Guðmundsson skoraði eitt. Svíinn Dalibor Doder fór á kostum í liði Minden og skoraði níu mörk.

Minden komst upp úr fallsæti með sigrinum en Hannover er í 11. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×