Handbolti

Rúnar kominn á blað í úrvalsdeildinni

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Rúnar Sigtryggsson
Rúnar Sigtryggsson
Balingen-Weilstetten sem leikur undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar gerði 23-23 jafntefli við GWD Minden í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Balingen-Weilstetten sem  tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum á leiktíðinni var hársbreidd frá fyrsta sigrinum í dag en Rúnar tók við liðinu í sumar.

Staðan í hálfleik var 12-12 og var jafnræði með liðunum allan leikinn en Minden hafði þó frumkvæðið lengst af leik en Balingen-Weilstetten komst yfir þegar mínúta var eftir.

Minden nýtti síðustu sóknina vel og jafnaði þegar ellefu sekúndur voru eftir. Minden er með þrjú stig í fjórum leikjum en Balingen-Weilstetten eitt í þremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×