Handbolti

Rúnar bjargaði stigi gegn Evrópumeisturunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rúnar gat leyft sér að fagna.
Rúnar gat leyft sér að fagna. vísir/daníel
Rúnar Kárason bjargaði stigi fyrir TSV Hannover-Burgdorf gegn Evrópumeisturunum Flensborg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Staðan var jöfn 12-12 í hálfleik og var leikurinn gífurlega jafn. Á lokasekúndu leiksins jafnaði Rúnar Kárason metin fyrir Hannover og bjargaði stigi gegn Evrópumeisturunum. Lokatölur 25-25.

Anders Eggert Hansen skoraði sjö mörk fyrir Flensburg í sumar, en Rúnar var markahæstur hjá Hannover-Burgdorf með fimm mörk.

Flensburg er í þriðja sætinu deildarinnar, en Hannover-Burgdorf er í þrettánda sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×