Fótbolti

Rúnar Alex tilnefndur sem besti markmaðurinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rúnar Alex ver vítaspyrnu í dönsku deildinni í vetur
Rúnar Alex ver vítaspyrnu í dönsku deildinni í vetur vísir/getty
Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hefur átt mjög gott tímabil með Nordsjælland í vetur og er hann tilnefndur sem besti markmaður tímabilsins til þessa.

Lesendum danska miðilsins bold.dk býðst að kjósa um lið haustsins í dönsku úrvalsdeildinni, og er Rúnar Alex á meðal þeirra fimm markvarða sem valið stendur um.

Hann hefur spilað 19 leiki með Nordsjælland það sem af er og haldið þrisvar sinnum hreinu, en Nordsjælland er í þriðja sæti deildarinnar.

Hægt er að kjósa Rúnar Alex hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×