Fótbolti

Rúnar á skotskónum í langþráðum sigri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rúnar í leik með Grasshopper í sumar á KR-vellinum.
Rúnar í leik með Grasshopper í sumar á KR-vellinum. Vísir/Anton Brink
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði annað marka Grasshoppers í 2-1 sigri á Lausannae í svissnesku deildinni í fótbolta í dag.

Var þetta fyrsti sigur liðsins í tvo mánuði í deild og bikar en liðið var búið að gera þrjú jafntefli og tapa fjórum á þessum tíma.

Rúnar Már kom Grasshoppers yfir á 6. mínútu leiksins en Numa Lavanchy bætti við marki sem reyndist vera sigurmark gestanna um miðbik fyrri hálfleiks en Lausanne náði að laga stöðuna stuttu fyrir leikslok..

Var þetta sjötta mark Rúnars á fyrsta tímabili hans í Sviss en Grasshoppers er í 5. sæti eftir leikinn, fimm stigum frá sæti í Evrópudeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×