Handbolti

Rúnar: Þeir lásu okkur eins og opna bók

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar Kárason skoraði tvö mörk í sex skotum á móti Spáni.
Rúnar Kárason skoraði tvö mörk í sex skotum á móti Spáni. vísir/afp
„Ég er persónulega mjög svekktur. Við vorum ekki að ná að leysa þetta í seinni hálfleik,“ sagði Rúnar Kárason, skytta íslenska landsliðsins í handbolta, við Vísi eftir 27-21 tapið gegn Spáni í fyrsta leik liðsins á HM 2017 í Frakklandi.

Strákarnir okkar spiluðu vel í fyrri hálfleik og voru 12-10 yfir. Í síðari hálfleik tóku Spánverjar öll völd á vellinum og buðu upp á átta marka sveiflu sem tryggði þeim sex marka sigur.

„Við þurftum að hafa rosalega mikið fyrir því að koma okkur í færi og stundum vorum við ekki einu sinni að koma okkur í færi, fannst mér,“ sagði Rúnar um seinni hálfleikinn þar sem lítið sem ekkert gekk upp hjá okkar mönnum.

„Við vorum ekki að koma boltanum almennilega á markið en þegar það tókst þá var hann í markinu alveg hrikalega erfiður. Hann er augljóslega mjög góður markvörður en við þurfum að gera betur. Það er krafa á okkur.“

„Við þurfum að vera klókari að koma boltanum betur á markið. Við þurftum að hafa mikið fyrir þessu í sókninni og það kostar rosalega orku. Þar af leiðandi verður erfiðara að verjast,“ sagði Rúnar.

Rúnar átti erfitt með að útskýra hvers vegna leikur íslenska liðsins var svona slakur í síðari hálfleik á miðað við þann fyrri þar sem nánast allt gekk upp.

„Það er erfitt að segja. Allt í einu kom einhver stund þar sem hlutirnir hættu að ganga upp. Þeir lásu okkur eins og opna bók í rauninni. Þetta eru auðvitað frábærir varnarmenn í spænska liðinu en við vorum ekki að koma með réttu lausnirnar og láta reyna almennilega á þá,“ sagði Rúnar.

„Við sýndum okkar rétta andlit í fyrri hálfleik. Við fengum frábæra markvörslu frá Bjögga í dag - og mörk! Hann er að verja víti og svona og því var forskot okkar kannski aðeins of mikið en á þessu þurfum við að halda.“

„Við komum inn í klefa í hálfleik í þvílíkum gír og kannski óheppnir að vera ekki með meira forskot. Ég er alveg svakalega svekktur en lífið heldur áfram,“ sagði Rúnar.

Línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson kom sterkur inn í dag og skoraði fjögur mörk í fimm skotum í sínum fyrsta landsleik þannig það voru jákvæðir punktar.

„Alveg klárlega. Arnar er að spila frábærlega í dag og Janus að fá mínútur og Ómar. Þetta eru strákar sem geta hjálpað okkur þannig við verðum bra að taka þessu og halda áfram,“ sagði Rúnar Kárason.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×