Íslenski boltinn

Rúnar: Deila þarf að sanna sig strax

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, í baráttunni í fyrri leiknum gegn Celtic.
Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, í baráttunni í fyrri leiknum gegn Celtic. Vísir/Daníel
KR mætir skoska stórliðinu Celtic í dag í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Skotarnir unnu fyrri leikinn í Vesturbænum 0-1, en Callum McGregor skoraði sigurmarkið á 84. mínútu.

Celtic er því í kjörstöðu fyrir seinni leikinn og Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir verkefni KR-inga ærið.

Ég býst við svipuðum leik og síðast. Þeir voru mikið með boltann og spiluðu hratt á milli sín.

Celtic spilaði æfingaleik á laugardaginn (innskot blm. gegn Dymano Dresden) og þeir eru að komast í betra stand.

Þetta verður örugglega hörku erfitt fyrir okkur, en við verðum að reyna að standa í þeim; leggja okkur fram, hlaupa og berjast og sjá hvort við getum strítt þeim aðeins, sagði Rúnar sem var ánægður með margt í fyrri leiknum.

Celtic er frábært lið og mun betra en ég gerði mér kannski grein fyrir.

Engu að síðu fannst mér við standa vel í þeim og héldum markinu okkar hreinu allt þar til nokkrar mínútur voru eftir af leiknum, sagði þjálfarinn, sem segist ekki vera búinn að skoða leik Celtic frá því um helgina.

Nei, við höfum ekki verið að skoða hann. Við höfum bara einbeitt okkur að því að skoða fyrri leikinn og hvað þeir gerðu þar. Svo horfum við meira á hvað við gerðum og hvað við getum gert til að bæta okkar leik.

Það verður ekki mikil breyting á þeirra leik frá því síðast. Þeir munu hugsanlega gera 2-3 breytingar á liðinu, en þeir munu ekki taka neina sénsa, sagði Rúnar, en hann segir ljóst að Skotarnir muni ekki vanmeta lið KR.

Celtic mun spila á sínu sterkasta liði. Þetta eru tveir fyrstu leikirnir undir stjórn nýja þjálfarans (innskot blm. Ronny Deila).

Hann fékk bara eins árs samning og hann þarf að sanna sig strax. Hann fer á fullu gasi í þennan leik og leikmennirnir þurfa að sanna sig fyrir honum. Þetta verður gríðarlegt erfitt fyrir okkur.

Rúnar segir mikilvægt fyrir KR að fá ekki á sig mark snemma leiks, en hann vill jafnframt sjá sína menn ógna Celtic-liðinu meira en í leiknum í Vesturbænum.

Það er það sem við þurfum að gera; að halda hreinu og laumast fram í eina og eina sókn. Við þurfum að skapa okkur fleiri færi en við gerðum í fyrri leiknum.

Við sköpuðum ekki mikið í þeim leik. Við þurfum að búa okkur til fleiri færi og það væri gaman að geta sett mark á þá, en fyrst og fremst þurfum við að passa okkur eigið mark.

Rúnar segir ástandið á leikmannahópnum gott, nema hvað Óskar Örn Hauksson muni missa af leiknum í dag vegna meiðsla.

Menn eru að detta inn. Gunnar Þór Gunnarsson fékk nokkrar mínútur í leiknum gegn Val um helgina eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla.

Guðmundur Reynir Gunnarsson er sömuleiðis allur að koma til eftir smávægileg meiðsli. Aðrir eru bara á nokkuð góðu róli, held ég, sagði Rúnar Kristinsson að lokum.


Tengdar fréttir

Sjáðu markið sem felldi KR

KR tapaði naumlega, 0-1, gegn skoska stórliðinu Celtic í kvöld en sigurmark gestanna var ekki það flottasta.

Furu farinn frá KR

Ivar Furu er farinn aftur til Molde í Noregi eftir að hafa spilað sem lánsmaður með KR í Pepsi-deild karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×