Fótbolti

Rummenigge: Bayern mun aldrei reka Guardiola

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Getty
Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, segir að þýska liðinu muni aldrei detta það í hug að reka þjálfara liðsins, Pep Guardiola.

Rummenigge var spurður út í hvort hann hefði áhyggjur af komandi tímabili þar sem nokkrir leikmenn liðsins hefðu enn ekki snúið til æfinga eftir heimsmeistarakeppnina í Brasilíu.

Hann segir að Guardiola verði að minnsta kosti við stjórnvölinn hjá Bayern til 2016 þegar samningur hans endar.

„Bayern mun aldrei reka Pep Guardiola. Ég get staðfest það við ykkur núna," sagði Rummenigge við þýskt dagblað.

Guardiola tók tvennuna með Bayern á sínu fyrsta ári; vann bikarinn og deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×