Lífið

Rumer Willis brjáluð yfir því að kjálkalínu sinni var breytt með Photoshop: „Þetta er einelti og ég mun ekki líða það“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rumer er þekkt fyrir kraftmikla kjálkalínu sína.
Rumer er þekkt fyrir kraftmikla kjálkalínu sína. Vísir/Getty
Rumer Willis, leikkona, söngkona, fyrirsæta og dóttir Bruce Willis og Demi Moore segir að þeir sem telji sig þurfi að breyta kjálkalínu sinni með hjálp tækninnar taki þátt í einelti gegn sér.

Rumer, sem þekkt er fyrir kraftmikla kjálkalínu sína, setti í gær mynd af sér inn á samfélagsmiðilinn Instagram sem ljósmyndari hafði breytt með hjálp myndvinnslutækni.

„Ljósmyndarinn breytti kjálkalínu minni á þessari mynd og lét hana líta út fyrir að vera minni en hún er. Mér finnst það mjög móðgandi að einhver breyti útliti mínu á svo afgerandi hátt,“ sagði Rumer í myndatexta við myndina.

„Hvort sem að menn átti sig á því eður ei er þetta einelti og ég mun ekki líða það,“ sagði Rumer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×