Sport

Rúgbý-stjarnan játar sig sigraðan í NFL og fer heim

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hayne spilar ekki aftur í NFL-deildinni.
Hayne spilar ekki aftur í NFL-deildinni. vísir/getty
Það var mikil spenna víða um heim er rúgbý-stjarnan Jarryd Hayne sagði skilið við rúgbý til þess að reyna sig í NFL-deildinni.

Sú vegferð gekk ekki sem skildi. Hann samdi við San Francisco 49ers en náði aldrei að slá í gegn í NFL-deildinni þrátt fyrir miklar væntingar.

Hann er nú kominn til Ástralíu og búinn að gera risasamning við Gold Coast Titans í rúgbý-deildinni þar.

Samningur hans er sagður vera sá stærsti í sögu deildarinnar en Hayne á að fá 107 milljónir í árslaun hjá Titans.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×