Innlent

Ruddust inn á heimili í Kópavogi þar sem tvö börn voru ein heima

Konurnar voru handteknar skömmu síðar.
Konurnar voru handteknar skömmu síðar.
Tvær konur ruddust inn í íbúð konu í Kópavogi laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Konan var ekki heima, en skelfingu lostin börn hennar náðu að læsa sig inn í herbergi og hringja þaðan í móður sína. Þegar hún kom á vettvang hótuðu þær henni með hnífi áður en þær hurfu á braut.

Konan hringdi á lögreglu, sem handtók konurnar á heimili þeirra skömmu síðar og vistaði þær í fangageymslum. Þær eru grunaðar um húsbrot, eignaspjöll, hótanir og fleira.

Þá réðust tveir karlmenn í annarlegu ástandi inn á heimili í Hafnarfirði á ellefta tímanum í gærkvöldi og veittust að húsráðanda. Annar þeirra var enn á vettvangi þegar lögreglu bar að, sem handtók hann, og vitað er hver hinn maðurinn er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×