Körfubolti

Ruddaskapur Toronto dugði ekki gegn LeBron | Myndbönd

LeBron James.
LeBron James. vísir/getty
LeBron James fór mikinn í liði Cleveland í nótt er liðið skellti Toronto í leik þar sem var mikið skorað.

James skoraði 29 stig í leiknum og gaf 14 stoðsendingar sem er hans besta í vetur. Hann keyrði sitt lið áfram í lokaleikhlutanum þar sem hann skoraði 24 stig.

Það var sparkað í punginn á honum gegn Houston um daginn og núna var brotið mjög harkalega á honum í þriðja leikhluta. James afþakkaði aðstoð þess er braut á honum til þess að komast á fætur og svaraði síðan með því að vinna leikinn.

Cleveland er í öðru sæti Austurdeildar ásamt Toronto og Chicago en Atlanta er í efsta sæti.

Úrslit:

Indiana-NY Knicks  105-82

Orlando-Phoenix  100-105

Boston-Utah  85-84

Brooklyn-Charlotte  91-115

Toronto-Cleveland  112-120

Houston-Memphis  100-102

Minnesota-Denver  85-100

New Orleans-Detroit  88-85

Oklahoma-Philadelphia  123-118

Miami-LA Lakers  100-94

San Antonio-Sacramento  112-85

Golden State-Milwaukee  102-93

LA Clippers-Portland  93-98

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×