Fótbolti

Roy Keane skoraði tvö þegar við mættum Írum síðast

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Keane var lengi vel fyrirliði írska landsliðsins.
Keane var lengi vel fyrirliði írska landsliðsins. vísir/getty
Ísland og Írland mætast í kvöld í Dublin í vináttulandsleik en það er orðið langt síðan þessar þjóðir mættust á knattspyrnuvellinum. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Íslenska landsliðið vann mikilvægan 2-1 sigur á Kósóvó í undankeppni HM á föstudagskvöldið en kemur við í Dublin á bakaleiðinni.

Íslenska liðið spilar ekki á móti Írum á hverjum degi. Í haust verða liðin tuttugu ár síðan Írar mættu á Laugardalsvöllinn og unnu 4-2 sigur á Íslandi í undankeppni HM 1998.

Þetta var fyrsti heimaleikur íslenska liðsins í keppni undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar og íslenska liðið tapaði ekki heimaleik aftur fyrr en rúmur tveimur árum síðar. Liðið gerði meðal annars 1-1 jafntefli við nýkrýnda heimsmeistara Frakka og vann Rússa í Laugardalnum á þessum tveimur árum.

Roy Keane, núverandi aðstoðarþjálfari Martins O’Neill hjá írska landsliðinu, var aðalstjarna leiksins í Laugardalnum 6. september 1997 en hann skoraði tvö mörk með tólf mínútna millibili í seinni hálfleik. Brynjar Björn Gunnarsson og Helgi Sigurðsson höfðu komið Íslandi í 2-1 en Keane jafnaði metin fyrst með skalla eftir horn og nýtti sér síðan varnarmistök og kom Írum í 3-2. Fjórða mark Íra kom síðan eftir að íslenska liðið hafði misst Lárus Orra Sigurðsson af velli með rautt spjald.

Keane var þarna nýtekinn við fyrirliðabandinu hjá Manchester United og hann þrefaldaði markaskor sitt með landsliðinu með þessum tveimur mörkum. Landsliðsmörkin hans urðu á endanum níu talsins.

Síðasti Íslendingurinn til að skora á móti Írum í Dublin var Ríkharður heitinn Jónsson sem skoraði bæði mörk Íslands í 4-2 tapi fyrir Írum í undankeppni EM í ágúst 1962.

Íslensku strákarnir geta í kvöld orðið fyrstir Íslendinga til að vinna Íra í ­A-landsleik karla en Írar hafa unnið fimm af sjö landsleikjum þjóðanna og tveir leikjanna enduðu með jafntefli. Ári fyrir leikinn í Laugardal í september 1997 gerðu liðin markalaust jafntefli í Dublin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×