Enski boltinn

Roy Keane hættur hjá Aston Villa

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Roy Keane.
Roy Keane. vísir/getty
Roy Keane, aðstoðarknattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa, hefur látið af störfum, en þetta tilkynntu Villa-menn á Twitter-síðu sinni nú rétt í þessu.

Aston Villa réð Keane sem hægri hönd Paul Lamberts í sumar, en hann hafði verið án þjálfarastarfs á Engandi síðan Ipswichs lét hann fara árið 2011.

Villa-liðinu hefur gengið illa í ensku úrvalsdeildinni, en það er í 16. sæti með tólf stig eftir tólf umferðir.

Roy Keane er einnig aðstoðarþjálfari írska landsliðsins og heldur því væntanlega áfram.

Fréttatilkynning er væntanleg á heimasíðu Aston Villa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×