Sport

Rousey skaut fast á Mayweather

Rousey er hér að taka andstæðing í gegn.
Rousey er hér að taka andstæðing í gegn. vísir/getty
Ronda Rousey veit, eins og heimurinn, að boxarinn Floyd Mayweather hefur átt það til að leggja hendur á konur.

Í að minnsta kosti sjö skipti hefur Mayweather látið hendur skipta gegn fimm mismunandi konum. Hann hefur þá annað hvort verið handtekinn eða aðvaraður. Hann sat svo tvo mánuði í steininum árið 2012.

Rousey var spurð á dögunum hvort hún gæti afgreitt Mayweather í búrinu. Hún byrjaði á frekar almennu svari.

„Ég myndi aldrei segja að ég gæti örugglega unnið þennan eða hinn. Ég held samt ekki að við munum nokkurn tímann slást," sagði Rousey. Hún hugsaði svo hratt og skaut fast. „Ekki nema við værum í ástarsambandi."

Mayweather meinaði tveim blaðakonum aðgengi að bardaga hans og Manny Pacquaio á dögunum. Báðar höfðu þær skrifað mikið um ofbeldi hans gegn konum.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×