Innlent

Rottweiler réðst á áttræða konu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Konan var flutt á slysadeild um tvö leytið í dag.
Konan var flutt á slysadeild um tvö leytið í dag. vísir/gva
Kona á áttræðisaldri var flutt á slysadeild um tvöleytið í dag eftir að Rottweiler hundur réðist á hana við matvöruverslun í Laugalæk í Reykjavík með þeim afleiðingum að hún féll í götuna.

Konan var illa bitin á handlegg auk þess sem fatnaður hennar skemmdist. Lögreglan var kölluð á vettvang auk hundaeftirlitsmanns sem tók hundinn í sína vörslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×