Viðskipti innlent

Rottur og sökkvandi skip

Stjórnarmaðurinn skrifar
Óhætt er að segja að ekki séu enn öll kurl komin til grafar varðandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Pundið heldur áfram að hríðfalla og hefur ekki verið veikara gagnvart Bandaríkjadal í þrjátíu ár. Sömu sögu er að segja af hlutabréfamörkuðum.

Á tímum sem þessum er nauðsynlegt að til staðar sé styrk pólitísk forysta til að leiða þjóðina gegnum óvissuna. Sú er þó aldeilis ekki raunin í Bretlandi. David Cameron forsætisráðherra var aðaltalsmaður aðildarsinna og sagði af sér um leið og úrslitin urðu ljós. George Osbourne fjármálaráðherra, sem hefur leitt breska hagkerfið með prýði gegnum öldudal eftirhrunsáranna, var sömuleiðis aðildarsinni.

Þeir félagar sitja því allt að því umboðslausir þar til Íhaldsflokkurinn hefur kosið sér nýjan leiðtoga. Markaðir eru ekki hrifnir af óvissu, og umboðslausir landsfeður eru ekki líklegir til að slá á ástandið.

Þá er vikið að „­sigurvegurum“ kosninganna; þeim Boris Johnson, Micheal Gove og Nigel Farage. Johnson og Gove tókst með ótrúlegum hætti að eyðileggja pólitíska framtíð hvor annars með kæruleysislegum viðbrögðum (Johnson) og klækjabrögðum sem keyrðu úr hófi (Gove). Farage, formaður hins rasíska breska þjóðernisflokks, var svo síðastur til að flýja hið sökkvandi skip.

Staðan er því sú að þeir sem með hálfsannleik og prettum komu Bretum í þá stöðu að vera á leið út úr Evrópusambandinu hafa allir stokkið frá borði. Það kemur því í hlut annarra að reisa skútuna við. Sennilegast er að Theresa May innanríkisráðherra verði fyrir valinu.

Churchill sagði að ­lýðræðið væri versta stjórnkerfi sem fundið hefði verið upp, fyrir utan öll hin. Hann sagði jafnframt að stærstu mótrökin gegn lýðræði væru fimm mínútna spjall við hinn almenna kjósanda.

Freistandi er að segja að Brexit undirstriki hversu stórt sannleikskorn var í ummælum Church­ills. Bretar létu lýðskrumara plata sig og sitja nú eftir leiðtogalausir. Því miður er enginn Churchill í sjónmáli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×