Skoðun

Rótarýklúbburinn eRótarý

Perla Björk Egilsdóttir skrifar
eRótarý, yngsti rótarýklúbbur landsins, var stofnaður fyrir rétt tæpum þremur árum af ungum, öflugum einstaklingum úr atvinnulífinu sem áttu það sameiginlegt að hafa áhuga á að tengjast stóru tengslaneti rótarýhreyfingarinnar.

Tæknivæddur rótarýklúbbur

Klúbburinn er einstakur að því leyti að nútímatækni er nýtt til fundahalda og reglulega eru haldnir netfundir sem er stýrt með fjarfundarstjórnunarforriti. Með þessu forriti stýrir fundarstjóri hvaða fundargestir eru í mynd, hljóði og hvaða tölvuskjár er sýnilegur öðrum fundargestum. Þessi tækni gerir það að verkum að félagar geta „mætt“ á fund í gegnum snjallsímann sinn eða tölvuna, hvar sem þeir eru staddir í heiminum.

Tæknin gerir það auk þess að verkum að auðvelt er að fá gestafyrirlesara sem staddir eru erlendis, til að halda fræðsluerindi á fundum klúbbsins. Klúbburinn heldur jafnframt hefðbundna fundi þar sem félagar hittast í raunheimum en þetta blandaða fundarform hefðbundinna funda og netfunda, hentar ungu fólki vel enda eru félagar í rótarýklúbbnum eRótarý á aldrinum 30–45 ára og meðalaldur klúbbfélaga því töluvert lægri en í öðrum rótarýklúbbum landsins.

Áhrif á samfélagið

Hugmyndafræði rótarýhreyfingarinnar er að auka skilning á milli fólks og atvinnugreina og láta gott af sér leiða. Allt frá stofnun eRótarý hafa félagar einsett sér að klúbburinn sé öflugur í því að nýta kraft og samtakamátt ólíkra einstaklinga. Á þeim tæpu þremur árum sem eRótarý hefur starfað hefur klúbburinn þegar staðið fyrir tveimur metnaðarfullum verkefnum sem hafa stutt við brýna samfélagslega þörf.

Fyrra verkefnið var til stuðnings Konukoti – athvarfi fyrir heimilislausar konur. Verkefnið, sem var unnið í samvinnu við verkefnastjóra Konukots, fólst í því að umbreyta ýmsum framlögum í formi fatnaðar og annars sem Konukoti hafði borist, í styrk með því að koma á laggirnar flóamarkaði. eRótarýfélagar lögðu fram vinnu sína við að koma markaðnum á laggirnar og mönnuðu fyrstu opnunardaga markaðarins í desember 2013. Flóamarkaður til stuðnings Konukoti varð þar með til og hefur starfað áfram.

Seinna verkefnið var til stuðnings börnum á Íslandi sem búa við skort. Verkefnið var unnið í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar í desember 2014 og bar heitið „Gefðu barni hlýju“. Mikil útgjöld fylgja kaupum á útifatnaði fyrir börn og unglinga en lítið berst af slíkum fatnaði til Hjálparstarfs kirkjunnar. Verkefnið fólst í því að vekja athygli á þessari þörf, safna fatnaði og aðstoða við úthlutun. Samfélagsmiðlar voru nýttir og safnaðist mikið magn af vönduðum og hlýjum fatnaði á börn og unglinga. Verkefnið breiddi út hlýju í víðasta skilningi.

Fyrir áhugasama um rótarýklúbbinn eRótarý er netfang klúbbsins erotary@rotary.is.




Skoðun

Sjá meira


×