Sport

Rotaður á heimavelli og fór að gráta | Sjáðu bardagann í heild sinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sænski bardagakappinn Alexander Gustafsson, sem margir töldu að væri eini maðurinn sem gæti ógnað meistaranum Jon Jones í léttþungavigtinni í UFC, tapaði óvænt í gær á heimavelli.

Fyrir framan 30.000 manns í Tele2-höllinni í Stokkhólmi var Gustafsson rotaður af Bandaríkjamanninum Anthony Johnson í fyrstu lotu.

Bardagann í heildinni í lýsingu Péturs Marinó Jónssonar má sjá í spilaranum hér að ofan.

Heimamenn ætluðu ekki að trúa eigin augum og vonbrigðin voru svo mikil fyrir Svíann að hann brast í grát fyrir framan sitt heimafólk. Það studdi sinn mann þó dyggilega og klappaði honum lof í lófa.

Gustafsson fékk þungt hægri handar höggi.vísir/getty
Johnson virtist meira en tilbúinn í bardagann og byrjaði strax að láta höggin dynja á Gustafsson sem var efstur á styrkleikalista léttþungavigtarinnar, en Johnson var í þriðja sæti.

Johnson fær nú tækifæri til að berjast á móti Jon Jones um heimsmeistaratitilinn: „Ég vona þú hafir það gott, bróðir. Nú skulum við gera fólkið spennt fyrir titilbardaganum okkar,“ sagði Johnson í viðtali eftir bardagann.

Bandaríkjamaðurinn hamraði Svíann í gólfið með þungu hægri handar höggi og stökk á bak honum. Svíinn reyndi að verja sig og fékk veglegan tíma til þess frá dómaranum. Á endanum gat hann ekkert annað gert en stöðvað bardagann þegar tvær mínútur og 15 sekúndur voru eftir.

Johnson var fljótur á bak.vísir/getty
„Mér leið frábærlega fyrir bardagann og einnig mjög vel á meðan bardaganum stóð. Hann náði mér bara. Hann náði inn höggi - það var það sem gerðist,“ sagði sársvekktur Gustafsson í viðtalinu eftir bardagann.

Svíinn ávarpaði sitt heimafólk og sænsku og þakkaði því fyrir komuna. Eðlilega uppskar hann mikið klapp frá samlöndum sínum sem munu ekki gefast upp á þessum gríðarlega hæfileikaríka bardagakappa.

Anthony Johnson er nú búinn að vinna níu bardaga í röð, þar af þrjá í röð í UFC. Árangur hans er 19 sigrar og fjögur töp en Gustafsson hefur nú unnið 16 sigra og tapað þrisvar sinnum.

Dómarinn stöðvaði bardagann.vísir/getty
Gustafsson var ráðvilltur fyrstu sekúndurnar.vísir/getty
Sársvekktur Sví.vísir/getty
MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×