Fótbolti

Rostov vill kaupa Björn Bergmann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björn Bergmann gæti verið á leið til Rússlands.
Björn Bergmann gæti verið á leið til Rússlands. Vísir/Getty
Rússneska úrvalsdeildarfélagið Rostov er á höttunum eftir Birni Bergmanni Sigurðarsyni, leikmanni Molde í Noregi. Norska félagið hefur þegar hafnað tilboði frá Rostov í íslenska landsliðsframherjann.

Þetta herma heimildir Vísis en viðræður á milli félaganna standa enn yfir og gætu aðilar náð saman fljótlega.

Björn Bergmann er næstmarkahæsti leikmaður norsku deildarinnar með ellefu mörk en Molde er í fjórða sætinu með 31 stig að loknum 20 umferðum.

Rostov hefur farið vel af stað í rússnesku deildinni en liðið er í þriðja sæti deildarinnar með fjórtán stig og hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu. Sverrir Ingi Ingason samdi við liðið fyrr í sumar en hann kom til þess frá Granada á Spáni.

Björn Bergmann gekk í raðir Molde frá Wolves árið 2016 eftir að hafa verið í láni hjá félaginu sumarið 2014, auk þess sem hann lék með FCK sem lánsmaður ári síðar. Hann hefur verið atvinnumaður síðan hann samdi við Lilleström árið 2009, þá sautján ára. Hann á alls sjö landsleiki að baki og hefur skorað í þeim eitt mark.


Tengdar fréttir

Sverrir Ingi og félagar unnu fjórða leikinn í röð

Sverrir Ingi Ingason og félagar í FK Rostov unnu fjórða leik sinn í röð í rússnesku deildinni en þrátt fyrir að lenda undir snemma seinni hálfleiks á útivelli vann Rostov 4-1 sigur og komst upp að hlið toppliðum rússnesku deildarinnar.

Gott að fara til Rússlands núna

Sverrir Ingi Ingason verður þriðji íslenski leikmaðurinn sem spilar í rússnesku úrvalsdeildinni en hann skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Rostov. Hann vildi komast í sterkari deild.

Gengið vonum framar þrátt fyrir nefbrot í fyrsta leik

Sverrir Ingi Ingason er lykilmaður í sterkustu vörn rússnesku úrvalsdeildarinnar. Hann kann vel við sig hjá Rostov sem hefur byrjað tímabilið af krafti. Sverrir er rólegur yfir stöðu sinni í íslenska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×