Fótbolti

Rosenborg og Grasshopper ekki í Evrópudeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar Már í leiknum gegn KR ytra.
Rúnar Már í leiknum gegn KR ytra. vísir/epa
Íslendingaliðin Rosenborg og Grasshopper munu ekki taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA á þessu tímabili.

Rosenborg tapaði fyrir Austria Vín, 1-2, á heimavelli og tapaði því rimmunni 4-2 samanlagt.

Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði allan leikin fyrir Rosenborg og Matthías Vilhjálmsson kom af bekknum á 26. mínútu.

Lið Rúnars Más Sigurjónssonar, Grasshopper, tapaði 0-2 á heimavelli gegn Fenerbahce og rimmunni 5-0 samanlagt.

Rúnar Már lék allan leikinn fyrir Grasshopper sem sló meðal annars KR út í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×