Körfubolti

Rose fór strax í endurhæfingu

Derrick Rose.
Derrick Rose. vísir/getty
Meiðslapésinn Derrick Rose hjá Chicago Bulls er ekki af baki dottinn. Aðeins degi eftir aðgerð var hann mættur í sjúkraþjálfun.

Rose fór í aðgerð á hné og telja læknar Bulls að hann verði í fjórar til sex vikur að jafna sig. Hann gæti því komið aftur áður en deildarkeppninni lýkur og það er nákvæmlega það sem hann ætlar að gera.

„Hann mun komast í gegnum þetta. Hann hefur gert það áður og gerir það aftur núna," sagði þjálfari liðsins, Tom Thibodeau.

Þetta var þriðja hnéaðgerðin hjá Rose á 34 mánuðum. Hann var í góðum anda er hann hóf endurhæfingu sína og afar bjartsýnn á að ná fullri heilsu á ný.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×