Körfubolti

Rose: Hæfileikaríkasta lið sem ég hef spilað með

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rose í leik með Bulls.
Rose í leik með Bulls. vísir/getty
Derrick Rose er ekki lítið ánægður með nýja liðið sitt, New York Knicks.

Hann fór þangað frá Chicago Bulls í sumar og virðist vera mjög bjartsýnn þó svo Knicks hafi ekkert getað í fjölda ára.

Lið Knicks lítur reyndar ágætlega út á pappír með Rose, Carmelo Anthony, Joakim Noah og Kristaps Porzingis sem helstu menn. Hvort þeir geti spilað saman á svo eftir að koma í ljós.

„Þetta er hæfileikaríkasta lið sem ég hef spilað með. Ég held að Anthony eigi eftir að gera hlutina auðvelda fyrir liðið,“ sagði Rose.

„Mitt hlutverk er líka að koma öllum í gang. Svo þarf ég að finna út hvar ég get haft yfirburði í mínum leik.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×