Formúla 1

Rosberg vann í Belgíu | Hamilton þriðji

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg sigldi auðan sjó í dag.
Nico Rosberg sigldi auðan sjó í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes sigldi auðan sjó fremstur í belgíska kappakstrinum. Daniel Ricciardo á RedBull varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes varð þriðji með ótrúlegum akstri.

Rosberg náði með fyrsta sætinu í dag að minnka forskot Hamilton í stigakeppni ökumanna niður í níu stig. Rosberg gerði sér væntanlega vonir um að minnka það enn frekar þar sem Hamilton ræsti 21.

Sebastian Vettel og Kimi Raikkonen á Ferrari lentu í samstuði í fyrstu beygju og Raikkonen þrýstist þá á Max Verstappen á Red Bull sem var innstur þeirra þriggja á leið inn í fyrstu beygju.

Kevin Magnussen skall harkalega á varnarvegg á leið út úr Eau Rouge beygjunni. Öryggisbíllinn bar kallaður út á 7. hring. Renault bíllinn var gjörónýtur. Magnussen steig sjálfur upp úr bílnum og haltraði við en virtist annars nokkuð heill.

Sjá einni: Myndband af árekstri Kevin Mangussen.

Hamilton var orðinn fimmti þegar öryggisbíllinn kom út og ökumenn tóku þjónustuhlé. Fernando Alonso var orðinn fjórði á McLaren bílnum.

Keppnin var svo stöðvuð á tíunda hring til að koma öryggisveggnum sem Magnussen lenti á, í samt horf.

Kevin Mangussen var heppinn að sleppa án mikilla meiðsla í dag.Vísir/Getty
Keppnin var endurræst og þá höfðu ökumenn skipt um dekk og lagað það sem hægt var að laga á bílum sínum.

Raikkonen og Verstappen héldu áfram að berjast eftir að keppnin var endurræst. Verstappen var ansi grófur við að loka á Raikkonen.

Hamilton kom sér í þriðja sæti með því að taka fram úr Nico Hulkenberg á 18. hring af 44. Hamilton var greinilega ákveðinn að takmarka skaðan af því að ræsa í 21. sæti.

Hamilton komst svo í sóknarfæri við Ricciardo á 30. hring. Ricciardo lét annað sætið ekki auðveldlega af hendi. Hamilton þurfti að hafa fyrir hlutunum.

Hamilton tók svo þjónustuhlé á 33. hring og tapaði einu sæti við það. Hulkenberg komst fram úr honum. Hamilton komst fram úr á 34. hring. Eftir það breyttist staða efstu manna ekkert.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg á ráspól í Belgíu

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir belgíska kappaksturinn. Max Verstappen varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen á Ferrari þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×