Formúla 1

Rosberg fljótastur á föstudegi í Japan

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg var fljótastur í allan dag á Suzuka brautinni í Japan.
Nico Rosberg var fljótastur í allan dag á Suzuka brautinni í Japan. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir japanska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton varð annar á báðum æfingum.

Fyrri æfingin

Romain Grosjean á Haas var fljótur út af brautinni þegar bremsurnar biluðu enn aftur á bíl Frakkans. Hann strandaði líka í malagryfju í Malasíu síðustu helgi þegar bremsurnar biluðu.

Fernando Alonso á McLaren og Max Verstappen á Red Bull fóru út af á sama stað. Lætin voru þó meiri hjá Alonso sem endaði í malargryfjunni.

Ökumenn röðuðu sér eftir liðum í fyrstu átta sætin á æfingunni. Mercedes menn fremstir, þar á eftir Sebastian Vettel á Ferrari ásamt Kimi Raikkonen. Red Bull ökumennirnir komu næstir og svo Force India.

Kevin Magnussen á Suzuka brautinni.Vísir/Getty
Seinni æfingin

Munurinn á Mercedes ökumönnunum var einungis 0,072 sekúndur, Rosberg í vil á seinni æfingunni. Raikkonen varð annar.

Menn voru aðeins að þvælast utan brautar aftur. Kevin Magnussen á Renault og Daniil Kvyat á Toro Rosso fóru út af á seinni æfingunni.

Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 5:50 í fyrramálið á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 4:30 á sunnudagsmorgun á Stöð 2 Sport.

Hér að neðan má sjá öll úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×