Formúla 1

Rosberg á ráspól í Þýskalandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þjóðverjinn Nico Rosberg náði ráspól í Þýskalandi
Þjóðverjinn Nico Rosberg náði ráspól í Þýskalandi Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes náði í ráspól á heimavelli. Valtteri Bottas varð annar á Williams og liðsfélagi hans Felipe Massa varð þriðji.

Bílarnir voru um 2 sekúndum fljótari með hringinn með ofur mjúku dekkinn undir. Mjúku dekkin (harðari gerðin þessa helgi) virtust hreinlega ekki virka vel í hitanum.

Lewis Hamilton snérist í fyrstu lotunni og rauðum flöggum var veifað. Hann var þar með hættur þátttöku í tímatökunni.

„Ég steig á bremsurnar og eitthvað gaf sig,“ sagði Bretinn í talstöðinni.

Í fyrstu lotunni duttu út Adrian Sutil á Sauber, Jules Bianchi og Max Chilton á Marussia, Pastor Maldonado á Lotus og Kamui Kobayashi á Caterham. Liðsfélagi Kobayashi, Marcus Ericsson tók ekki þátt í tímatökunni. Bíllinn hans var ekki reiðubúinn eftir óhapp á æfingunni í morgun.

Í annarri lotu sátu eftir Romain Grosjean á Lotus, Jenson Button á McLaren, Kimi Raikkonen á Ferrari, Jean-Eric Vergne á Toro Rosso, Esteban Gutierrez á Sauber og Hamilton sem tók ekki þátt.

„Ég hef átt erfitt alla helgina, þetta hefur ekki verið auðveld helgi,“ sagði Button eftir að hafa tapað fyrir liðsfélaga sínum í tímatökunni.

Valtteri Bottas er á flugi þessa dagana.Vísir/Getty
„Mér þykir leitt að Lewis gat ekki barist til loka, en á endanum er ég ánægður með niðurstöðuna,“ sagði Rosberg eftir tímatökuna.

„Við erum ánægð með að ná öðru og þriðja sæti, vel gert hjá liðinu. Við verðum að reyna að gera okkar besta á morgun,“ sagði Valtteri Bottas eftir tímatökuna.

Paddy Lowe, tæknistjóri Mercedes sagði eftir tímatökuna að bremsudiskur í bíl Hamilton hefði brugðist. Hann sagði líka að Rosberg væri með aðra gerð bremsudiska í sínum bíl svo hann hafi ekki þurft að hafa áhyggjur.

Niðurstaða tímatökunnar varð:

1.Nico Rosberg - Mercedes

2.Valtteri Bottas - Williams

3.Felipe Massa - Williams

4.Kevin Magnussen - McLaren

5.Daniel Ricciardo - Red Bull

6.Sebastian Vettel - Red Bull

7.Fernando Alonso - Ferrari

8.Daniil Kvyat - Toro Rosso

9.Nico Hulkenberg - Force India

10.Sergio Perez - Force India

11.Jenson Button - McLaren

12.Kimi Raikkonen - Ferrari

13.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

14.Esteban Gutierrez - Sauber

15.Romain Grosjean - Lotus

16.Lewis Hamilton - Mercedes

17.Adrian Sutil - Sauber

18.Jules Bianchi - Marussia

19.Pastor Maldonado - Lotus

20.Kamui Kobayashi - Caterham

21.Max Chilton - Marussia

22.Marcus Ericsson - Caterham - tók ekki þátt

Keppnin fer fram á morgun og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 11:30.


Tengdar fréttir

FIA íhugar breyttar refsingar

Alþjóða aksturstíþróttasambandið (FIA) leitar nú nýrra leiða til að refsa liðum fyrir óörugg þjónustuhlé. Núgildandi reglur refsa ökumönnum fyrir slík þjónustuhlé.

Hvern fer að vanta íhluti eftir níu keppnir?

Aukin áhersla er nú í Formúlu 1 á áreiðanleika. Hér förum við yfir hver er búinn að nota hvað. Refsingar liggja við notkun fleiri hluta en heimilt er.

Bottas: Mercedes gæti fundið fyrir FRIC banni

Valtteri Bottas, ökumaður Williams telur að Mercedes liðið verði fyrir mestum áhrifum ef tengd fram og aftur fjöðrun (FRIC) verður bönnuð. Bottas telur að bannið myndi ekki hafa áhrif á Williams liðið.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg á Mercedes varð fljóstastur á fyrri æfingu dagsins. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton var skammt á eftir honum. Hamilton varð svo flótastur á seinni æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×