Formúla 1

Rosberg: Þetta var dómgreindarleysi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg var hissa á baulinu í Belgíu.
Rosberg var hissa á baulinu í Belgíu. Vísir/Getty
Nico Rosberg lenti aftan á liðsfélaga sínum, Lewis Hamilton í belgískakappakstrinum síðustu helgi með afdrifaríkum afleiðingum fyrir Hamilton.

Baulað var á Rosberg á verðlauna pallinum eftir keppnina en hann endaði í öðru sæti. Rosberg var fullyrti í viðtölum strax eftir keppnina að um kappakstursatvik hefði verið að ræða. Hann ætti ekki sök og skildi ekki ásakanir í sinn garð.

Nú hefur Rosberg hins vegar skipt um skoðun og kennir dómgreindarleysi um áreksturinn. Mercedes liðið kom saman til fundar á föstudag og var niðurstaðan sú að leyfa ökumönnum liðsins að keppa sín á milli áfram og sleppa liðsskipunum.

Hamilton sagði eftir fundinn að hann gæti núna aftur unnið með Rosberg. Hann sagðist ekki vera viss um að geta treyst Rosberg eftir keppnina. Það viðhorf hefur greinilega breyst.

Augljóst er að álag titilbaráttunnar er farið að segja til sín. Áhugavert verður að fylgjast með framhaldinu og komandi keppnum. Líklega er þetta ekki síðasta skiptið sem sýður upp úr innan Mercedes liðsins á tímabilinu.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Mercedesmenn fljótastir á föstudegi og Chilton mun keppa

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni á Spa brautinni. Max Chilton hefur endurheimt sæti sitt hjá Marussia.

Ætlar McLaren að yngja upp?

McLaren liðið vinnur nú að þriggja til fimm ára ökumanna áætlun. Hvorugur ökumaður liðsins hefur heyrt hvort hann er inni í þeirri áætlun.

Ricciardo vann í Belgíu

Daniel Ricciardo á Red Bull kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum rétt í þessu. Annar var Nico Rosberg á Mercedes og þriðji Valtteri Bottas á Williams.

Nico Rosberg á ráspól í Belgíu

Nico Rosberg á Mercedes plantaði sér á ráspól fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Lewis Hamilton var annar og Sebastian Vettel þriðji.

Bílskúrinn: Hverjum var um að kenna í Belgíu?

Belgíski kappaksturinn sem fram fór í gær var fyrir margt athyglisverður. Daniel Ricciardo vann sína þriðju keppni og Kimi Raikkonen náði sínum besta árangri á tímabilinu. Allra augu beinast þó að Mercedes þessa stundina. Hvað er að gerast þar? Verður liðið starfhæft á næstunni?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×