Formúla 1

Rosberg: Lewis lokaði harkalega á mig

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Verðlaunapallurinn í Kanada.
Verðlaunapallurinn í Kanada. Vísir/Getty
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í kanadíska kappakstrinum í dag. Hamilton tapaði forystunni tímabundið til Sebastian Vettel sem átti eldfljóta ræsingu. Hver sagði hvað eftir keppnina?

„Dekkin voru köld og það var mikil undirstýring. Við Nico [Rosberg] vorum heppnir að skemma ekki vængi eða eitthvað,“ sagði kampakátur og kampavínsblautur Hamilton á verðlaunapallinum eftir að hafa unnið fimmta kanadíska kappaksturinn á ferlinum.

„Mercedes voru bara aðeins of snöggir í dag. Aðdáendur hér gera helgina skemmtilegri en margar aðrar. Við glímdum aðeins við meðvind sem ruglaði jafnvægið örlítið,“ sagði Vettel á verðlaunapallinum. Hann hefði hugsanlega geta unnið keppnina með betri keppnisáætlun Ferrari.

„Við erum afar ánægð með að ná verðlaunasæti, Williams er að ná framförum og það er gaman að ná þessum árangri fyrir framan þessa frábæru áhorfendur,“ sagði Valtteri Bottas sem náði í dag í fyrsta verðlaunasæti Williams liðsins á árinu.

„Við vanmátum hversu mikið dekkin myndu endast. Það gera allir mistök. Það er óþarfi að gera söguna dramatískari en hún er. Við gerðum mistök,“ sagði Maurizio Arrivabene liðsstjóri Ferrari.

Nico Rosberg úti á túni.Vísir/Getty
„Lewis lokaði harkalega á mig. Ég var mjög pirraður á því augnabliki. Svona er kappaksturinn. Ég þarf bara að passa að vera fyrir framan þegar þetta gerist næst,“ sagði Nico Rosberg sem var alls ekki kátur með sitt dagsverk.

„Dekkin voru að slitna of hratt hjá okkur. Við hefðum viljað enda á verðlaunapallinum en við gerðum okkar besta,“ sagði Max Verstappen sem endaði fjórði.

„Þetta var ekki góður sunnudagur. Ræsingin var ágæt en þegar Rosberg var að koma inná aftur þá lenti ég í smávægilegum vandræðum. Við gátum ekki notað dekkin eins vel og við vildum. Við vorum mikið í umferðinni,“ sagði Daniel Ricciardo sem tapaði fyrir liðsfélaga sínum í dag.


Tengdar fréttir

Sainz: Ég lokaði augunum og lét vaða

Lewis Hamilton var fljótastur í tímatökunni í Kanada í gær. Hann verður því á ráspól í dag. Ráspóll Hamilton verður 51. ráspóll Mercedes liðsins.

Hamilton fljótastur á báðum æfingum

Lewis Hamilton, á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir kanadíska kappaksturinn. Felipe Massa lenti harkalega á varnarvegg í fyrstu beygju á fyrri æfingunni.

Lewis Hamilton vann í Kanada

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum í Kanada. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari eftir að hafa leittum tíma.

Lewis Hamilton á ráspól í Kanada

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni í dag. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×