Formúla 1

Rosberg: Ég mun halda mig innan velsæmismarka

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg og Lewis Hamilton munu heyja einvígi í eyðimörkinni í Abú Dabí um helgina.
Nico Rosberg og Lewis Hamilton munu heyja einvígi í eyðimörkinni í Abú Dabí um helgina. Vísir/Getty
Nico Rosberg og Lewis Hamilton munu berjast um heimsmeistaratitil ökumanna í keppninni í Abú Dabí um helgina. Þeir mættust á blaðamannafundi í dag, hver sagði hvað?

Rosberg var spurður að því hvort fyrri reynsla hans af baráttu um titilinn árið 2014 myndi hjálpa honum.

„Það hjálpar að hafa áður glímt við Lewis í einvígi um titilinn hérna árið 2014.“

Aðspurður um hvort bilanir í bíl Lewis gæfi mögulegum heimsmeistaratitli hans minna vægi sagði Rosberg:

„Ég veit hvernig tímabilið hefur farið hjá okkur báðum en hvað varðar óáreiðanleika sem Lewis hefur verið að lenda í þá vil ég benda á að tímabilið er ekki búið svo það er of snemmt að tala um hvernig það fór. Ég myndi elska að klára tímabilið með því að vinna hér.“

„Ég er ekki að hugsa um hvað gerist í framtíðinni. Ég mun ekki velta því fyrir mér enda er ég í þessari stöðu vegna þess að ég hef verið að einbeita mér að núinu hverju sinni.“

Ökumennirnir voru spurðir að því hvort þeir myndu gera hvað sem er til að tryggja sér titilinn, jafnvel gríða til örþrifaráða.

„Ég mun reyna að vinna keppnina og halda mig innan velsæmismarka,“ svaraði Rosberg.

„Mitt eina markmið um helgina er að vinna keppnina. Það er eina sem ég get gert,“ svaraði Hamilton.

Það vakti mikla athygli þegar Mercedes liðið tilkynnti í upphafi tímabilsins sem er að ljúka að vélvirkjar liðsins myndu skipta um bíl.

Rosberg var spurður um liðsandann og tilgang þessara umskipta.

„Breytingarnar á starfsmönnum innan liðsins, það er að segja þeir vélvirkjar sem fóru frá mér til Lewis og öfugt hafa virkað vel enda er liðsandinn betri en nokkru sinni í liðinu.“

Hvernig hefur samband ykkar tveggja þróast á síðustu þremur árum þar sem þið hafið iðulega barist af talsverðri hörku um titilinn?

„Við virðum hvern annan og ég ber mikla virðingu fyrir Lewis sem byggir að miklu leyti á sambandi okkar síðan við vorum í Gó-kart saman,“ sagði Rosberg.

„Ég er stoltur af Nico ef ég stíg til baka og lít á árangur hans hlutlaust. Sérstaklega akstur hans í ár,“ svaraði Hamilton við sömu spurningu.

Lokaorð Rosberg á fundinum voru að hann ætlar að gera allt til að ná að vinna bæði keppnina og titilbaráttuna.

Aðspurður hvernig tímabilið hefði þróast og hvað myndi einkenna tímabilið þegar upp verði staðið, sama hvernig fer um helgina svaraði Hamilton:

„Titilbaráttan hefur ekki farið eins og ég hefði viljað hingað til á tímabilinu.“

„Tímabilið er búið að vera mikil áskorun, ég hef lært að það er allt hægt ef maður einbeitir sér að því sem maður er að gera. Ég er búin að koma aftur til baka eftir að hafa verið langt undir í baráttunni.“

Hann bætti svo við:

„Eftir að tímabilinu lýkur hætti ég að hugsa um það, ég fer strax að hugsa til framtíðar. Ég er ekki vanur að líta of mikið til baka.“

Aðspurður um hvort hann myndi gera eins og Christian Horner, liðsstjóri Red Bull stakk upp á og reyna að bakka Rosberg inn í einhver vandræði svaraði Hamilton:

„Mitt eina markmið er að vinna keppnina, Nico hefur verið á ráspól hér síðustu tvö ár. Hann er yfirleitt fljótur hér. Ég get ekki ákveðið að ég muni bakka honum inn í hættu frá bílum sem eru aftar. Slíkt væri ekkert sérstaklega gáfulegt hér, það eru tvö löng svæði sem má opna afturvænginn á og það opnar á möguleika fyrir hinn að taka fram úr ef maður er að reyna að hægja á honum. Það væri því ekki gáfulegt að bjóða þeirri hættu heim. Ég mun því líklegast ekki gera það.“

Sjá einnig: Horner: Hamilton ætti að beita brögðum í keppninni.

Lokakeppni tímabilsins fer fram um komandi helgi. Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 12:50 á laugardag á Stöð 2 Sport 3. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 12:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×