Formúla 1

Rosberg: Ég hugsa ekkert um að ég hafi einhverju að tapa á morgun

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
(t.h) Kimi Raikkonen varð þriðji, Lewis Hamilton var fljótastur og Nico Rosberg varð annar.
(t.h) Kimi Raikkonen varð þriðji, Lewis Hamilton var fljótastur og Nico Rosberg varð annar. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði í sinn sextugasta ráspól í Formúlu 1 í tímatökunni í dag. Hann verður á undan liðsfélaga sínum og keppinaut í heimsmeistarakeppninni þegar keppnin hefst á morgun. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Mér hefur fundist ég verða hraðari og hraðari eftir því sem líður á helgina. Nico hefur einnig verið að finna hraða alla helgina. Ég hefði ekki getað óskað eftir betri byrjun á helginni. Liðið er búið að standa sig gríðarlega vel,“ sagði Hamilton heldur áfram að gera allt sem hann getur gert til að halda spennunni í heimsmeistaramótinu.

„Ég var bara ekki alveg nógu snöggur í dag. Lewis var örlítið fljótari í dag. Ég hugsa ekkert um að ég hafi einhverju að tapa á morgun. Við erum með góðan bíl í blautu og þurru. Þetta veðrur að koma í ljós á morgun,“ sagði Nico Rosberg sem mun væntanlega vilja berjast fyrir 25 stigunum á morgun sem eru í boði ef honum tekst að vinna keppnina.

„Ég var aðeins að klúðra upphituninni á dekkjunum og miðkafla brautarinnar. Hins vegar dugði það til að ná í þriðja sætið á ráslínu. Það er bara fínt, ég hitti á mjög góðan hring í lokin,“ sagði Kimi Raikkonen sem varð þriðji á Ferrari.

„Þetta gekk vel framan af en skyndilega hættu framdekkin að grípa og það er ömurlegt að lenda í þessu fyrir framan þessa mögnuðu áhorfendur. Ég mun gera allt sem ég get til að sýna þeim hvað ég get í keppninni á morgun. Síðasti hringurinn á morgun verður tilfinningaríkur,“ sagði heimamaðurinn Felipe Massa sem varð 13. á Williams bílnum.


Tengdar fréttir

Magnussen til Haas | Palmer áfram hjá Renault

Renault ökumennirnir Kevin Mangussen og Jolyon Palmer hafa báðir tryggt sér keppnissæti í Formúlu 1 á næsta tímabili. Magnussen hjá Haas og Palmer áfram hjá Renault.

Lewis Hamilton á ráspól í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir brasilíska kappaksturinn. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Lance Stroll verður ökumaður Williams

Hinn 18 ára Lance Stroll mun taka sæti Felipe Massa hjá Williams liðinu í Formúlu 1 á næsta ári. Massa ætlar að láta af störfum eftir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×