Tónlist

Rosalegt stuð á tónleikum Bang Gang og í eftirpartýinu - Myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurjon Ragnar og Taki Bibelas tóku meðfylgjandi myndir.
Sigurjon Ragnar og Taki Bibelas tóku meðfylgjandi myndir.
Útgáfutónleikar Bang Gang voru haldnir þann 1. október síðastliðinn í Gamla Bíói. Fullt var út úr húsi en einnig komu fram hljómsveitin Gangly og breska sveitin Is Tropical þeytti skífum.

Sérstakir gestir á tónleikum Bang Gang voru þeir JB Dunckel úr franska dúettinum AIR og Daniel Hunt úr bresku sveitinni Ladytron. Einnig var með í för Jófríður Ákadóttir úr Samaris. Var því fjölmennt á sviðinu undir lok tónleikanna. Töluverður áhugi hjá erlendum fjölmiðlum var fyrir tónleikunum og mættu meðal annars : New York Observer, Nylon, La Repubblica, Noisey auk fjlölda annarra miðla.

Eftir tónleikana var haldið lokað partý í samstarfi við Símann + Spotify í Petersen svítunni í Gamla bíó. Franskættaði plötusnúðurinn Emmanuelle 5 sá um að halda upp i stuðinu og þar var mættu gestir og skáluðu í Brennivíns cocktail og Bríó bjór.

Þar mættu meðal annars : Gísli Pálmi, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, JB Dunckel, úr hljómsveitinni Air, Danny (Ladytron), Gary, Simon, Kirsty (Is Tropical) og svo mætti lengi telja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×