Bíó og sjónvarp

Rosalegt eftirpartý eftir frumsýningu Síma látins manns - Myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Benedikt Erlingsson og fleiri voru á staðnum.
Benedikt Erlingsson og fleiri voru á staðnum. Myndir/Óli magg
Leikritið Sími látins manns eftir bandaríska leikskáldið Söruh Ruhl var frumsýnt í Tjarnarbíói í gærkvöldi og var verkið frumsýnt á Listahátíð í Reykjavík. Charlotte Bøving leikstýrir gamanverkinu sem segir frá konu sem ákveður að svara í síma manns á kaffihúsi, sem hefur hringt án afláts.

Umfjöllunarefni verksins er einsemdin og þráin eftir nánd. Snjallsímar og sambærileg tæki, með ótakmörkuðu upplýsingaflæði og tengimöguleikum, geta virkað eins og gereyðingartól í mannlegum samskiptum og skapað þrúgandi tómarúm. Leikritið er bráðfyndið en með grafalvarlegum undirtóni í takt við umfjöllunarefni verksins sem eru nándin, siðferðiskenndin, líf og dauði.

Sími látins manns er fyrsta verk leikskáldsins Söruh Ruhl sem er sett upp á Íslandi. Bandaríska leikskáldið Sarah Ruhl hefur unnið til fjölmargra verðlauna og meðal annars hlotið tvær tilnefningar til hinna virtu Pulitzer verðlauna. Verk hennar hafa verið sett upp víðsvegar í Bandaríkjunum og Evrópu og þýdd á fjölda tungumála.

Verkið er fyrsta uppsetning leikhópsins Blink sem leikkonan María Dalberg stofnaði árið 2014. Fjórar sýningar verða á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og er miðasala á Midi.is.

Fjölmargir mættu á frumsýninguna í gær og var síðan boðið í eftirpartý eftir sýninguna. Þar var mikið stuð eins og sjá má hér að ofan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×