Lífið

Rosaleg breyting á Röggu Nagla

Ellý Ármanns skrifar
Ragga hefur breyst allsvakalega með breyttum lífsstíl.
Ragga hefur breyst allsvakalega með breyttum lífsstíl. mynd/ragga nagli
Heilsudrottningin  Ragga Nagli  einkaþjálfari og klínískur heilsusálfræðingur gaf okkur leyfi til að birta meðfylgjandi mynd sem hún setti á síðuna sína í dag með þessum skilaboðum:

Hertók haus og skrokk



Naglinn var á 15 ára endurfundum menntskælinga lærða skólans um liðna helgi.  
Af því tilefni er hér samanburðarmynd af menntaskólamærinni og Naglanum sem braust út og hertók haus og skrokk.



Lífsstílsvenjur menntaskólaáranna voru síst til eftirbreytni og samanstóðu máltíðirnar af majónesbaseruðum langlokum , sígó og kók í hádeginu. 



Á kvöldin voru rúntað um borg óttans og þurfti auðvitað að fylla á kviðarholið með Litlum Snæðingi á BSÍ, hambó, fröllur, kokteil.  Ekki fer maður að sofa á tóman maga.

Sem starfsmaður kvikmyndahúss hreppti Naglinn ólympískt gull í sælgætisáti, og bronsverðlaun í popp – og nachos slafri.  Ekki var óalgengt að slátra einum kúlusúkkpoka án þess í byrjun vaktar, fylgt eftir með pizzu í kvöldmat, Djæf með möndlum í desa og nachos með ostasósu fyrir svefninn.

Ekki þarf að fjölyrða um magn áfengis sem rann ljúflega niður kverkarnar á menntaskólaárunum.  

Daginn eftir gjálífið var sextán tomma með peppó og hakki fastur liður eins og vanalega og dísætu kóla með rauðum miða til að skola herlegheitunum niður.



Tók mörg ár að breyta hegðunarmynstrinu


Gerðist breyting á matarvenjum Naglans á magískum 12 vikum eins og í töfrakúrunum?   

Heldur betur ekki. Það tók mörg mörg ár (og nokkrar sálfræðigráður) að þjálfa upp æskilegri hugsanir og stuðla þar með að breyttu hegðunarmynstri.

En með að breyta aðeins fáum atriðum í einu tók hollusta og heilsa yfir nachos, rettur og reglulegar flatbökur. 

Lykilatriði í lífsstílsbreytingu Naglans var að gramsa, prófa, leita og finna hollustukombó og heilsusamleg gúrmeti sem glöddu tunguna og sinnið.

Hefur Naglinn hrasað í átt að betri lífsstíl? Ótal, milljón sinnum. En alltaf staðið upp aftur, horinu snýtt, tárin þerruð, brækur girtar, og aftur af stað.

Þegar þú lærðir að hjóla dastu ekki einhvern tíma í götuna?

Hrösun er lærdómsferli, og styrkir okkur með vopnabúri af trixum, tólum, tækni til að tækla svipaðar aðstæður á annan hátt í framtíðinni.

Hvert skipti sem þú stendur upp, dustar rykið af brókunum og sest aftur á hnakkinn er sigur, og litlir sigrar safnast saman í áttina að langvarandi lífsstílsbreytingu.



Heimasíða Röggu







Fleiri fréttir

Sjá meira


×