Golf

Rory mölvaði andlitið á Jimmy Fallon | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rory, Fallon og Tiger.
Rory, Fallon og Tiger. mynd/skjáskot
Rory McIlroy og Tiger Woods mættu í kvöldþáttinn á NBC til Jimmy Fallon í gærkvöldi, en þeir eru tveir stærstu kylfingarnir sem Nike er með á samningi.

Þeir brugðu á leik og tóku meðal annars ísvatns-áskorunina sem tröllríður nú Bandaríkjunum til að vekja athygli á ALS-sjúkdómnum.

Undir lokin fóru Fallon og McIlroy í léttan leik þar sem þeir skiptust á að slá golfboltum í glerplötur með andlitum þeirra á. Sá sem var fyrri til að brjóta allar glerplöturnar með andliti andstæðingsins á vann.

Tiger tók ekki þátt vegna meiðsla, en hann var sérstakur aðstoðarmaður Fallons. Það dugði þó skammt því Rory rúllaði upp keppninni og mölvaði andlitið á Fallon nokkrum sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×