Golf

Rory McIlroy stóðst pressuna og sigraði Opna breska

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy stóðst áhlaup Sergio Garcia á seinasta hring Opna breska Meistaramótsins í golfi og tryggði sér Silfurkönnuna eftirsóttu.

Rory var með sex högga forystu fyrir daginn í dag eftir að hafa leikið óaðfinnanlegt golf fyrstu þrjá keppnisdaga mótsins. Garcia gerði harða atlögu að forystu Rory á lokahringnum og náði þrisvar að minnka niður í tvö högg en alltaf náði Rory að halda spænska kylfingnum í ágætri fjarlægð.

Góð frammistaða Rory á fyrstu þremur dögum mótsins varð á endanum það sem skóp sigurinn en Garcia náði að minnka forskot Rory um fjögur högg á lokadegi mótsins. Það var hinsvegar of seint og fagnaði McIlroy sigrinum á síðustu holu vallarins með pari.

Var þetta þriðji stórmeistaratitill Rory á ferlinum en hann hefur nú unnið PGA meistaramótið, opna bandaríska- og Opna breska meistaramótið og er Mastersmótið eina stórmótið sem kylfingnum vantar í safnið.

Fyrir sigur sinn á mótinu fær McIlroy rúmlega 150 milljónir íslenskra króna í vasann en faðir hans vann tæplega fjörutíu milljónir punda á sigri Rory fyrir veðmál sem hann gerði fyrir tíu árum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×