Golf

Rory McIlroy snæddi með Bill Clinton

Það fór vel á með McIlroy og Clinton.
Það fór vel á með McIlroy og Clinton. Twitter/RoryMcIlroy
Rory McIlroy nýtur lífsins þessa dagana en hann hefur sigrað á tveimur risamótum og einu heimsmóti í golfi á undanförnum vikum.

Hann var heiðursgestur á leik Manchester United og Swansea í ensku úrvalsdeildinni á dögunum og skellti sér síðan í spjallþátt Jimmy Fallon í síðustu viku ásamt Tiger Woods.

Rory McIlroy lék á Barclays mótinu um síðustu helgi og endaði í 22. sæti en hann viðurkenndi í kjölfarið að hann þyrfti að einbeita sér betur að golfinu á komandi vikum.

Það stöðvaði hann þó ekki í að taka stuttan hádegisverð í fyrradag með Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseta, en Clinton er sjálfur liðtækur kylfingur með rúmlega 11 í forgjöf.

Þeir hittust á Sebonack vellinum á Long Island í New Jersey en McIlroy hefur á undanförnum dögum verið að undirbúa sig undir Deutsche Bank Championship sem fram fer á TPC Boston.

McIlroy skrifaði á Twitter síðu sína að það væri ávalt sönn ánægja að hitta Clinton en forsetinn fyrrverandi verður heiðursgestur á Deutsche Bank Championship sem hefst í dag. Golfstöðin mun sýna beint frá mótinu og hefst útsending frá fyrsta hring klukkan 18:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×