Golf

Rory hjálpar veikum börnum í Kentucky

Rory var farsæll á síðasta ári.
Rory var farsæll á síðasta ári. vísir/getty
Kylfingurinn Rory McIlroy sannaði um jólin að hann er með hjarta úr gulli.

Lítil sjónvarpsstöð í Kentucky-fylki fékk þá sendan kassa með alls konar árituðum varningi frá Norður-Íranum.

Fólkið á stöðinni skildi lítið í þessari sendingu til að byrja með en síðar kom í ljós að einn starfsmaður stöðvarinnar hafði biðlað til McIlroy um að fá áritaðan varning.

Stöðin stendur nefnilega fyrir söfnun á hverju ári þar sem safnað er fyrir veik börn. Þessir munir fara því á uppboð á ágóðinn rennur allur til barnanna.

Góð sending hjá McIlroy sem vann tvö mót í fylkinu á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×