Golf

Rory áfram í miklu stuði á Hoylake

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rory er eins og Mugison; að stinga af.
Rory er eins og Mugison; að stinga af. vísir/getty
Rory McIlroy heldur áfram að spila vel á opna breska meistaramótinu í golfi, en hann lék fyrri níu holurnar á öðrum keppnisdegi í dag á tveimur höggum undir pari.

Rory fékk skolla á fyrstu holu en síðan þrjá fugla á 5., 6., og 8. holu, en hann lék á 66 höggum í gær og var samtals á átta höggum undir pari eftir fyrri níu. Hann bætti svo við öðrum fugli á tíundu holu og er nú á níu höggum undir pari, þremur höggum á undan næsta manni.

Skollinn í dag var sá fyrsti sem Norður-Írinn fær á mótinu. Hann spilaði gallalausan hring í gær og fékk sex fugla.

Tiger Woods gluggar í bók.vísir/getty
Ítalinn FrancescoMolinari gefur ekkert eftir í baráttunni, en hann er í öðru sæti á sex höggum undir pari. Hann er tvo undir í dag eftir viðburðaríkan hring. Hann er búinn að fá sex fugla, tvo skolla og einn tvöfaldan skolla.

Molinari er búinn með 15 holur í dag en Spánverjinn SergioGarcia er einnig á sex höggum undir pari eftir tólf holur. Hann er að spila á tveimur höggum undir pari í dag eftir að spila fjóra undir í gær.

Tiger Woods er enn á parinu eftir að spila fyrstu tvær holur dagsins á þremur höggum yfir pari. Hann hefur síðan parað níu holur í röð.

Staðan á opna breska.

Allir keppnisdagarnir á opna breska meistaramótinu í golfi eru í beinni útsendingu á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir

Ógleymanlegur afmælisdagur hjá Coetzee

George Coetzee frá Suður-Afríku átti svo sannarlega magnaðan 28 ára afmælisdag. Coetzee er meðal efstu manna á samtals fimm höggum undir pari á Opna breska eftir að hafa leikið annan hring mótsins á 69 höggum eða þremur höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×