Fótbolti

Rooney um Ísland: Frábær saga hjá skipulögðu liði sem verður erfitt að brjóta niður

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Wayne Rooney leiðir enska liðið út á völlinn í Nice á mánudagskvöldið.
Wayne Rooney leiðir enska liðið út á völlinn í Nice á mánudagskvöldið. vísir/getty
Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United og enska landsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þar sem hann var spurður út í næsta mótherja liðsins.

Það er vitaskuld Ísland en strákarnir okkar tryggðu sér annað sætið í F-riðli með sigri á Austurríki í gær og mætir ósigrað í 16 liða úrslitin. Leikur Englands og Íslands fer fram á mánudagskvöldið í Nice.

Sjá einnig:Rooney skoraði geggjað mark þegar Ísland og England mættust síðast | Myndband

Englendingar eru mjög kátir með úrslit gærdagsins í F-riðli þar sem Portúgal gerði jafntefli við Ungverjaland. Það varð til þess að Portúgal hafnaði í þriðja sæti og mætir England því Íslandi í staðinn.

„Það skipti okkur engu máli hvort við myndum spila við Ísland eða Portúgal. Til að komast lengra þarf að vinna góð lið. Það hefur sýnt sig á þessu móti að allir geta unnið alla,“ sagði Rooney.

„Ég hef séð marga segja að England verði að vinna Ísland, Frakkland og Spán til að komast alla leið en hvað segir mönnum að þessi lið komast öll áfram. Það sem við gerum núna er að einbeita okkur að Íslandi og reyna að vinna þann leik.“

Wayne Rooney er fyrirliði Englands í dag.vísir/epa
Jafnar við Beckham

Enska liðið er að spila ágætlega á þessu móti en varð af sigri í B-riðlinum þegar það gerði markalaust jafntefli við Slóvakíu í lokaumferð riðlakeppninnar. Rooney er samt bjartsýnn á sigur gegn Íslandi.

„Þetta fer allt eftir því hvernig við spilum. Við eurm gott lið og getum mætt liðum sem verjast og sækja á okkur. Við getum alltaf breytt okkar leikáætlun,“ sagði Rooney.

„Við höfum drottnað yfir leikjunum okkar hingað til og ekki verið líklegir til að tapa. Ef við skorum snemma verður Ísland að sækja á okkur og það hentar okkur vel.“

Rooney, sem spilar sinn 115. landsleik gegn Íslandi og jafnar þar við félaga sinn David Beckham, hefur séð íslenska liðið spila og talaði vel um það á blaðamannafundinum í dag.

„Ég sá Ísland spila í undankeppninni. Þetta er vel skipulagt lið og við vitum að það verður erfitt að brjóta það niður. Það er mikilvægt að við spilum hratt og látum Íslendingana vinna fyrir þessu. Fyrir þá er þetta frábær saga og Ísland hefur staðið sig vel hingað til,“ sagði Wayne Rooney.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Heimir: Menn voru bara að missa sig

Leikmenn, þjálfarar og starfslið Íslands missti sig úr gleði þegar strákarnir skoruðu sigurmarkið gegn Austurríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×