Enski boltinn

Rooney rústaði símanum sínum þegar hann reiddist

Rio og Rooney.
Rio og Rooney. vísir/getty
Rio Ferdinand spilaði með Wayne Rooney í tíu ár hjá Man. Utd og segir að framherjinn eigi oft erfitt með að ráða við skap sitt.

Í væntanlegri bók Ferdinand talar hann um æðisköstin sem Rooney átti til að taka.

„Wayne Rooney var ákaflega reiður, ungur maður. Hann var alltaf að rífast við fólk í símanum. Hann átti það til að snöggreiðast yfir mestu smámunum og hann skipti um síma eins og nærbuxur. Hann var nefnilega duglegur að mölva símana sína þegar hann var pirraður. Negldi þeim í vegginn," segir Rio í bók sinni.

„Ég veit ekki hvað gerðist en hann hefur róast mjög mikið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×